23.08.20 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Inter lánar Lazaro til Gladbach (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter er búið að lána austurríska kantmanninn Valentino Lazaro til þýska toppbaráttufélagsins Borussia Mönchengladbach út tímabilið.
Gladbach borgar 1,2 milljónir evra fyrir lánssamninginn og getur fest kaup á Lazaro fyrir 13,8 milljónir í viðbót. Þá myndi Inter eiga 15% af peningnum sem fæst fyrir næstu sölu Lazaro frá Gladbach.
Lazaro er 24 ára gamall og var keyptur til Inter síðasta sumar fyrir rúmar 20 milljónir evra. Hann var þó of sóknarþenkjandi og sinnti ekki varnarvinnunni nægilega vel að mati Antonio Conte, þjálfara Inter. Lazaro var því lánaður til Newcastle í janúar, þar spilaði hann fimmtán leiki og skoraði tvö mörk.
Lazaro á 28 leiki að baki fyrir Austurríki og hafa félög á borð við Bayer Leverkusen, Werder Bremen og RB Leipzig áhuga á honum.