23.08.20 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jagielka og Rodwell framlengja við Sheffield (Staðfest)

Chris Wilder hefur gert frábæra hluti með Sheffield Utd.

Mynd: Sheffield United

Sheffield United er búið að staðfesta að Phil Jagielka og Jack Rodwell muni vera hjá félaginu út tímabilið, eða til júní 2021.
Jagielka er 38 ára gamall og var fyrirliði Everton í nokkur ár ásamt því að vera fyrsti leikmaður Everton til að bera fyrirliðaband enska landsliðsins. Hann ólst upp hjá Sheffield og spilaði hátt í 300 leiki fyrir félagið áður en hann skipti til Everton.
Jagielka hélt aftur heim til Sheffield í fyrra og spilaði tíu leiki á nýliðnu tímabili, sex í úrvalsdeildinni.
Rodwell er 29 ára og lék með Jagielka hjá Everton þar sem hann gerði góða hluti og var keyptur til Manchester City. Hann lenti í erfiðum meiðslum hjá City og hefur síðan þá spilað fyrir Sunderland og Blackburn.
Rodwell gekk í raðir Sheffield í janúar og kom við sögu í tveimur leikjum í vor.
Sheffield reyndist meðal spútnik liða síðasta tímabils í enska boltanum og endaði í níunda sæti, aðeins fimm stigum frá Evrópusæti.