Fotbolti.net
23.08.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Milan selur Ricardo Rodriguez til Torino (Staðfest)

Milan selur Ricardo Rodriguez til Torino (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svissneski landsliðsbakvörðurinn Ricardo Rodriguez er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Torino.
Rodriguez, sem á 28 ára afmæli næsta þriðjudag, hefur verið hjá Milan í þrjú ár og spilað 92 leiki fyrir liðið. Hann var fastamaður í byrjunarliðinu frá 2017 til 2019 en missti sæti sitt við komu Theo Hernandez.

Milan greiddi tæpar 20 milljónir evra fyrir Rodriguez þegar hann kom frá Wolfsburg sumarið 2017 en Torino borgar aðeins þrjár milljónir fyrir hann í dag.

Torino átti óvenju slakt tímabil í ítölsku deildinni og endaði aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Rodriguez mun berjast við Argentínumanninn Cristian Ansaldi um byrjunarliðssæti hjá Torino.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.