23.08.21 - 16:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shaqiri til Lyon (Staðfest)

Xherdan Shaqiri.

Mynd: EPA

Xherdan Shaqiri.

Mynd: EPA
Xherdan Shaqiri hefur fengið félagaskipti frá Liverpool til franska úrvalsdeildarfélagsins Lyon.
„Við öll hjá Liverpool þökkum Xherdan fyrir hans framlag síðustu þrjú tímabilin og óskum honum þess besta fyrir framhaldið á ferlinum," segir á vefsíðu Liverpool.
Fram kom á The Athletic í gær að kaupverðið sé 9,5 milljónir punda. Liverpool hafnaði fyrsta tilboði Lyon sem var upp á 4 milljónir punda og náði að hækka kaupverðið upp.
Shaqiri var keyptur til Liverpool fyrir 13,75 milljónir punda frá Stoke sumarið 2018. Hann spilaði 63 leiki fyrir Liverpool.
Samkvæmt The Athletic þá lítur Liverpool á hinn 18 ára gamla Harvey Elliott sem arftaka Shaqiri í hópnum. Hann byrjaði gegn Burnley í gær og stóð sig vel. Svissneski landsliðsmaðurinn - Shaqiri - er farinn til Frakklands.