Fotbolti.net
23.08.26 - 21:33
Sigurjón Árni Torfason

„Hlauptu á fjær, ég ætla að setja hann á kollinn á þér."

Auglýsing
Gísli var með markaskóna reimaða á sig í dag

Gísli var með markaskóna reimaða á sig í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tóku á móti FH í dag í 20. umferð Bestu deildar karla á Elkem vellinum á Akranesi leikurinn var nokkuð lokaður og endaði leikurinn með 1-1 jafntefli. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir á Akranes og heyrðu í Gísla eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 1 FH
„Fyrstu viðbrögðin eru bara svolítið svekkjandi. Maður vill auðvitað fara í alla heimaleiki til að vinna en úr því sem komið var þá bara veit ég það ekki, hvort þetta sé bara sanngjarnt."

Leikurinn var nokkuð lokaður heilt yfir en Skagamenn voru þó líklega aðeins sterkari aðilinn þegar á heildina er litið.

„Við fengum samt alveg færin í fyrri hálfleik og hvort það var líka aðeins í seinni en ég er ekki alveg með þetta. Mér fannst eins og við hefðum verið líklegri allan tímann til að setja þetta þriðja mark, en svona er þetta." sagði Gísli svekktur.

„Boltinn fer beint í höndina á honum, hann hoppar og setur hendina upp og bara í óeðlilegri stöðu og ég hefði haldið að það væri víti, en þetta fór svona."

Gísli Eyjólfsson skoraði eina mark Skagamanna í leiknum eftir skemmtilegan undirbúning Jóns Gísla sem gerði vel í aðdraganda marksins.

„Johnny kemur til mín og segir: „Hlauptu á fjær, ég ætla að setja hann á kollinn á þér.“ Og bara já."


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.