Fotbolti.net
23.10.13 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Gallas til Perth Glory (Staðfest)

Gallas til Perth Glory (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

William Gallas hefur skrifað undir eins árs samning hjá Perth Glory í Ástralíu.

Þessi 36 ára gamli Frakki hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Tottenham í sumar.

Gallas var einnig með tilboð frá Bandaríkjunum og Austurlöndum fjær en hann ákvað að verða fyrsti Frakkinn til að spila í áströlsku úrvalsdeildinni.
Það er fagnaðarefni fyrir ástralska boltann að bæta stjörnu við deildina en fyrir í henni eru Alessandro Del Piero, Shinji Ono og Emile Heskey.

Mætingin á leiki Perth Glory hefur verið á mikilli niðurleið að undanförnu en vonast er til að koma Gallas muni hafa svipaða innspýtingu og þegar Robbie Fowler skrifaði undir hjá liðinu 2010 og lék með því í eitt ár.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.