23.10.13 - 15:39
Magnús Már Einarsson
Ian Holloway hættur hjá Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ian Holloway er ekki lengur stjóri Crystal Palace en ekki er hjóst hvort að hann var rekinn úr starfi eða hvort hann sagði sjálfur upp.
Eftir 4-1 tap gegn Fulham á mánudagskvöld hefur Holloway átt nokkra fundi með Steve Parish formanni Palace og þeim fundarhöldum lauk með því að ákveðið var að láta leiðir skilja.
Holloway tók við Crystal Palace á síðasta tímabili eftir að hafa hætt hjá Blackpool en nú er stjórnartíð hans lokið.
Crystal Palace komst upp í ensku úrvalsdeildina síðastliðið vor en liðið hefur byrjað tímabilið skelfilega og situr í næstneðsta sæti með einungis þrjú stig.