Fotbolti.net
23.10.14 - 11:19
Magnús Már Einarsson

Anthony Reveillere til Sunderland (Staðfest)

Anthony Reveillere til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunderland

Sunderland hefur samið við varnarmanninn Anthony Reveillere en hann var á sínum tíma í franska landsliðinu.

Reveillere hefur skrifað undir samning við Sunderland út timabilið en hann var án félags og gat því gert samning þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Á síðasta tímabili var Reveillere á mála hjá Napoli en þessi 34 ára gamli leikmaður hefur einnig leikið með Lyon og Rennes á ferli sínum.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik með Sunderland gegn Arsenal um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.