Fotbolti.net
23.10.15 - 17:55
Elvar Geir Magnússon

Shola Ameobi í botnlið Bolton (Staðfest)

Shola er þekktastur fyrir dvöl sína hjá Newcastle.

Shola er þekktastur fyrir dvöl sína hjá Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers hefur fengið til sín nígeríska landsliðsmanninn Shola Ameobi. Þessi reynslumikli 34 ára sóknarmaður kemur á frjálsri sölu eftir að hafa verið hjá félaginu á reynslu.
Á hápunkti ferilsins lék Ameobi með Newcastle þar sem hann lék sinn fyrsta leik 18 ára gamall gegn Chelsea þann 9. september árið 2000.

Hann lék 312 leiki fyrir Newcastle, 145 sem varamaður, og skoraði 53 mörk. Hann var nýlega hjá Crystal Palace en var leystur undan samningi í lok síðasta tímabils.

Hann lék með Nígeríu á HM 2014 en á yngri landsleiki að baki fyrir England.

Ameobi á að hjálpa Bolton sem er á botni ensku Championship-deildarinnar með aðeins einn sigur í öllum keppnum það sem af er tímabili. Hann fær treyju númer 26.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.