Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. október 2019 15:54
Elvar Geir Magnússon
Búist við því að Özil fái tækifærið á morgun
Özil á æfingu í dag.
Özil á æfingu í dag.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlamenn sem fylgdust með æfingu Arsenal í dag búast við því að Mesut Özil fái tækifærið í Evrópudeildarleiknum gegn Vitoria á morgun.

Tekið var eftir því að Unai Emery og Özil voru í góðu spjalli á æfingunni.

Özil er launahæsti leikmaður Arsenal en hefur aðeins spilað einn úrvalsdeildarleik á tímabilinu og ekkert spilað í Evrópudeildinni.

Emery hefur þó sagt að dyrum verði ekki lokað á Özil og að hann gæti fengið tækifærið með góðri frammistöðu á æfingum.

Arsenal verður án Reiss Nelson gegn portúgalska liðinu á morgun þar sem hann er meiddur á læri.

Emile Smith Rowe var meðal leikmanna sem komu við sögu á æfingunni en hann meiddist í deildabikarleik gegn Nottingham Forest í síðasta mánuði.

Arsenal tapaði gegn nýliðum Sheffield United 1-0 í ensku úrvalsdeildinni síðasta mánudag. Í Evrópudeildinni gengur þó allt vel hjá Arsenal og liðið er með sex stig eftir tvo fyrstu leiki sína.
Athugasemdir
banner
banner