Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 23. október 2020 22:09
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Mögnuð endurkoma Sassuolo
Francesco Caputo skoraði jöfnunarmark Sassuolo
Francesco Caputo skoraði jöfnunarmark Sassuolo
Mynd: Getty Images
Sassuolo 3 - 3 Torino
0-1 Karol Linetty ('33 )
1-1 Filip Djuricic ('71 )
1-2 Andrea Belotti ('77 )
1-3 Sasa Lukic ('79 )
2-3 Vlad Chiriches ('84 )
3-3 Francesco Caputo ('85 )

Sassuolo kom til baka og náði í stig gegn Torino í Seríu A í kvöld en liðið skoraði tvö mörk á lokamínútunum í 3-3 jafntefli.

Pólski miðjumaðurinn Karol Linetty kom Torino yfir á 33. mínútu áður en Filip Djuricic jafnaði á 71. mínútu.

Andrea Belotti og Sasa Lukic gerðu annað og þriðja mark Torino og héldu gestirnir að sigurinn væri í höfn.

Leikmenn Sassuolo voru þó ekki á sama máli. Rúmenski varnarmaðurinn Vlad Chiriches minnkaði muninn á 84. mínútu og innan við mínútu síðar jafnaði Francesco Caputo metin.

Lokatölur 3-3. Sassuolo er með 11 stig í 2. sæti deildarinnar á meðan Torino er í 19. sæti með aðeins 1 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner