Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 23. október 2021 12:54
Aksentije Milisic
„Að gera jafntefli gegn Everton var eins og tap fyrir mig"
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, var í viðtali við SkySports þar sem hann ræddi ýmis mál tengd félaginu.

Hann var spurður út í viðbrögð sín eftir að flautað hafi verið til leiksloka í leik Manchester United og Everton á Old Trafford fyrr á tímabilinu.

Mörgum til mikillrar undrunnar þá byrjaði Ronaldo þann leik á bekknum en kom snemma inn á í síðari hálfleik. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og eftir leik strunsaði Ronaldo inn í búningsklefann, hundsvekktur.

„Fyrir mig, að gera jafntefli gegn Everton á heimavelli, með fullri virðingu, var eins og tap fyrir mig. Svona hvet ég mig áfram og vinn titla allan minn feril og spila fyrir stærstu félögin," sagði Ronaldo.

Ronaldo og félagar í Manchester United eiga stórleik á morgun en þá kemur Liverpool í heimsókn á Old Trafford.
Athugasemdir
banner