23.11.13 - 12:51
Ívan Guðjón Baldursson
Tony Pulis tekinn við Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tony Pulis hefur verið ráðinn sem nýr knattspyrnustjóri Crystal Palace eftir að hafa skrifað undir tveggja og hálfs árs samning.
Pulis tekur við liðinu eftir leik liðsins gegn Hull City síðar í dag, en Keith Millen, bráðabirgðastjóri Palace, mun stýra liðinu í dag.

Fyrsti leikur Pulis verður því gegn Norwich City, laugardaginn 30. nóvember.
Pulis er 55 ára gamall velskur knattspyrnustjóri. Hann hefur aldrei fallið sem stjóri og var lykilmaður í að koma Stoke City í góða stöðu í ensku Úrvalsdeildinni.
Ráðning Pulis er staðfest mánuði eftir brottför Ian Holloway sem vann bara einn leik af níu með Palace í deildinni eftir að hafa komið liðinu upp úr Championship deildinni.

Heimild: Sky Sports