Fotbolti.net
23.11.15 - 17:43
Elvar Geir Magnússon

Denizli tekur við Galatasaray í þriðja sinn (Staðfest)

 Mustafa Denizli.

Mustafa Denizli.

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Galatasaray hefur tilkynnt að það hefur náð samkomulagi við Mustafa Denizli um að hann taki við þjálfun félagsins í þriðja sinn.

<i>„Það er bara eitt félag sem ég er til í að fórna orðsporinu fyrir og það er Galatasaray,\"</i> sagði hinn 66 ára Denizli.
Hann stýrði liðinu 1987-89 og 1990-92 og hefur einnig þjálfað Fenerbahce og Besiktas ásamt landsliði Tyrklands.

Hann tekur við af Hamza Hamzaoglu sem var rekinn á miðvikudag. Taffarel, fyrrum markvörður Brasilíu, tók tímabundið við stjórnartaumunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.