Fotbolti.net
23.11.15 - 17:12
Elvar Geir Magnússon

Ingólfur Sigurðsson í Fram (Staðfest)

Ingólfur er kominn í Fram.

Ingólfur er kominn í Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ingólfur Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Ingólfur kemur til Fram frá Víkingi Ólafsvík en þar lék hann 24 leiki síðastliðið sumar og skoraði í þeim 7 mörk. Ingólfur á að baki bæði leiki fyrir Val og KR í efstu deild karla og hefur leikið fjölda leikja fyrir hönd Íslands í yngri landsliðum.

Alls hefur hann leikið 67 leiki í meistaraflokki hér á landi og skorað í þeim 10 mörk en Ingólfur var um tíma á mála hjá Heerenveen í Hollandi og Lyngby í Danmörku.

Ingólfur er 22 ára og er fjórði leikmaðurinn sem Fram fær til sín síðan tímabilinu í sumar lauk. Áður höfðu Atli Fannar Jónsson gengið til liðs við liðið frá Víkingi Reykjavík ásamt þeim Hlyni Atla Magnússyni og Brynjari Kristmundssyni sem komu frá Noregi.

„Knattspyrnudeild Fram hlakkar til samstarfsins við Ingólf og ætlar honum stórt hlutverk í vegferðinni í að koma Fram í hóp þeirra bestu á nýjan leik. Jafnframt hyggur félagið á að styrkja leikmannahópinn enn frekar fyrir komandi átök næsta sumar,\" segir á heimasíðu Fram.

Fram hafnaði í níunda sæti 1. deildarinnar í sumar eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni í fyrra. Ásmundur Arnarsson tók við sem þjálfari Fram fyrir nokkrum vikum.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.