Harry Kane, fyrirliði Englands, er á leið í myndatöku á hægri ökkla en hann meiddist snemma í seinni hálfleik í 6-2 sigrinum gegn Íran á mánudag.
Callum Wilson kom inn sem varamaður fyrir Kane í leiknum og Kane sást með umbúðir um ökklann.
Callum Wilson kom inn sem varamaður fyrir Kane í leiknum og Kane sást með umbúðir um ökklann.
Þessi mikli markaskorari er á leið í skoðun á miðvikudag þar sem kemur í ljós hvort meiðslin séu eitthvað slæm.
Englendingar vonast eftir jákvæðri niðurstöðu en þeir eiga leik gegn Bandaríkjunum á föstudagskvöld.
James Maddison missti af leiknum gegn Íran en hann hefur verið að glíma við hnémeiðsli, þá var Harry Maguire veikur og fór af velli í leiknum á mánudag.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir