Fotbolti.net
23.11.26 - 16:29
Elvar Geir Magnússon

Sýn missir Meistaradeildina alfarið til Viaplay

Evrópudeildin og Sambandsdeildin verða á Livey

Höfuðstöðvar Sýnar við Suðurlandsbraut.

Höfuðstöðvar Sýnar við Suðurlandsbraut.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýir aðilar taka við útsendingarrétti Evrópukeppna karla í fótbolta frá og með næstu leiktíð til ársins 2031.

Sýn verður ekki lengur með útsendingaréttinn heldur mun Viaplay taka alfarið við sýningu á Meistaradeildinni og Livey mun sýna Evrópudeildina og Sambandsdeildina.
Vísir greinir frá því að Viaplay hafi unnið útboðið um Meistaradeild Evrópu og streymisveitan Livey vann útboðið um Evrópudeildina og Sambandsdeildina yfir sama tímabil, 2027-2031.

Sýn Sport og Viaplay sýna áfram leiki í keppnunum þremur fram á vor, þar með talinn úrslitaleikinn sem fram fer í Madríd í júní.

Heimild: Vísir

Sýn missir Meistaradeildina alfarið til Viaplay
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.