Fotbolti.net
23.11.26 - 16:10
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Yfirferðin með Elízu Gígju: Farið yfir landsliðshópana

Hannah Hampton á markmannsstöðuna hjá Englandi

Hannah Hampton á markmannsstöðuna hjá Englandi

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn

Nú styttist í úrslitaleiki umspilsins fyrir HM í Brasilíiu 2027 og eru flestir þjálfarar búnir að velja hópana sína fyrir gluggann. Fyrri leikirnir verða spilaðir 1. desember og þeir seinni 5. desember.

Sarina Wiegman hefur valið hópinn fyrir enska liðið sem mætir Úkraínu. Fyrri leikurinn er á Spáni og sá seinni á Wembley. Áhugaverðustu tíðindin eru þau að Izzy Goodwin fær sæti í hópnum í fyrsta skiptið. Hún hefur spilað fyrir yngri landslið Englands á síðustu árum en ekki fengið kallið í A-landsliðið en flott frammistaða hennar með London City Lionesses á tímabilinu skilar henni sætinu að þessu sinni. Goodwin er 23 ára og hefur spilað með London City frá tímabilinu 2024/2025 þegar hún hjálpaði liðinu upp um deild. Hún er hávaxinn framherji sem skilar mörkum ásamt því að vera snögg, sterk og góð í loftinu og verður gaman að sjá hvort hún fær einhverjar mínútur í þessu verkefni.

Ella Toone snýr aftur í hópinn eftir að hafa verið skilin eftir heima í síðasta glugga sem kom mörgum á óvart. Katie Cox, markmaður Nottingham Forest er, líkt og Goodwin, valin í fyrsta skipti en Hannah Hampton hefur átt þá stöðu hjá landsliðinu síðustu ár og mun líklega ekkert breytast í þeim efnum á næstunni. 

Hópurinn sem mætir Íslandi

Ísland mætir auðvitað Portúgal í umspilinu og hefur hópurinn þeirra verið valinn. Þær spila langflestar í Portúgal og hljóta að græða á því að hálft liðið spilar saman hjá Benfica. Einhverjar hafa þó leitar út fyrir landsteinana og spila ýmist á Ítalíu, í Frakklandi eða í Sviss. Andreia Jacinto er 24 ára spennandi leikmaður sem er í herbúðum Real Madrid og hefur verið að spila vel á miðjunni eftir að hún kom frá Real Sociedad í sumar og hefur lagt upp sjö mörk í öllum keppnum á tímabilinu. 

Blackstenius ekki með Svíum og Ceri Holland snýr aftur hjá Wales

Tony Gustavsson, þjálfari Svía, hefur sömuleiðis valið sinn hóp fyrir þeirra einvígi gegn Skotlandi. Þær byrja í Skotlandi og eiga seinni leikinn heima í Stokkhólmi. Stina Blackstenius hefur verið fjarverandi í síðustu leikjum Arsenal vegna meiðsla í hásin og ljóst að hún verður ekki með svíum í þessu verkefni. Cornelia Kapocs, leikmaður Liverpool, kemur inn fyrir Blackstenius en hún hefur hingað til ekki spilað leik fyrir A-landsliðið þrátt fyrir að hafa verið í hópnum í einhver skipti. Þá kemur Elma Junttila Nelhage, leikmaður OL Lyonnes, aftur inn í hópinn eftir að hafa neyðst til að draga sig úr síðasta verkefni vegna meiðsla. 

Wales mæta Noregi í umspilinu og hefur Rhian Wilkinson tilkynnt sinn hóp fyrir verkefnið. Fyrri leikurinn fer fram í Cardiff áður en þær fara til Osló þar sem seinni leikurinn er spilaður. Þær endurheimta marga leikmenn sem misstu af síðasta glugga vegna meiðsla, þar á meðal Hayley Ladd leikmann Crystal Palace og Ceri Holland leikmann Liverpool. 

Nöfn úr enska boltanum í finnska liðinu

Ítalía og Finnland mætasti í einu einvíginu og hefur Andrea Soncin valið í ítalska liðið. Hin 32 ára Giuseppina Moraca sem spilar með Como 1907 í heimalandinu er valin í fyrsta sinn ásamt liðsfélaga sínum Gaia Distefano og Irene Santi, liðsfélaga Karólínu Leu og Cecilíu Ránar hjá Inter. Leikmenn á borð við Aurora De Rita, Elena Linari og Agnese Bonfantini snúa aftur í hópinn eftir fjarveru. 

Finnski hópurinn hefur einnig verið tilkynntrur en þar eru helstu tíðindin að Jutta Rantala, leikmaður Everton, snýr aftur en hún hefur ekki spilað landsleik síðan í október á síðasta ári. Fleiri leikmenn sem spila í ensku deildinni er að finna í finnska hópnum en þar er að finna nöfn líkt og Eveliina Summanen, leikmann Tottenham, Oona Siren og Eva Nyström, leikmenn West Ham og Anna Koivunen, leikmann Charlton sem sóttu sitt fyrsta stig um helgina. Einnig er töluvert magn af leikmönnum sem spila í WSL 2 á Englandi sem og í sænsku deildinni. 

Engin Putellas með Spáni

Spænska liðið hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt á HM en þær unnu riðil Íslands í undankeppninni. Þær spila tvo æfingaleiki í glugganum og búið að er tilkynna gríðarlega sterkan hóp en á sama tíma ný andlit sem fá tækifæri til að sanna sig í fjarveru stórra nafna. Silvia Cristóbal, leikmaður Real Madrid, Cecilia Marcos, leikmaður Real Sociedad og Daniela Agote, leikmaður Athleti Club eru allt leikmenn sem fá að spreyta sig í fyrsta skipti. Aitana Bonmatí snýr aftur eftir að hafa verið fjarverandi vegna meiðsla en Irene Paredes og Alexia Putellas, handhafi gullboltans, verða hvíldar í þessum glugga. 

Ella Toone snýr aftur í enska hópinn

Ella Toone snýr aftur í enska hópinn

Canon

Mynd: EPA

Andreia Jacinto mætir Íslandi með Portúgal

Andreia Jacinto mætir Íslandi með Portúgal

Canon

Mynd: EPA

Stina Blackstenius verður ekki með Svíum

Stina Blackstenius verður ekki með Svíum

Canon

Mynd: EPA

Ceri Holland snýr aftur hjá Wales

Ceri Holland snýr aftur hjá Wales

Canon

Mynd: EPA

Irene Santi kemur ný inn hjá Ítölum

Irene Santi kemur ný inn hjá Ítölum

Canon

Mynd: EPA

Eveliina Summanen verður með Finnum

Eveliina Summanen verður með Finnum

Canon

Mynd: EPA

Putellas fær hvíld í glugganum

Putellas fær hvíld í glugganum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.