Fotbolti.net
23.12.13 - 16:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

AC Milan lánar Niang til Montpellier (Staðfest)

M\'Baye Niang.

M\'Baye Niang.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur lánað franska táninginn M\'Baye Niang aftur heim til Frakklands og mun hann leika með Montpellier út leiktíðina.
Niang hefur átt erfitt uppdráttar hjá Milan, en þessum 19 ára gamli sóknarmanni hefur ekki tekist að skora í þeim 28 deildarleikjum sem hann hefur spilað með Milan.

Milan keypti Niang frá Caen fyrir einu og hálfu ári og hafði þar betur í samkeppni við nokkur af stærstu félögum Evrópu.

Talið er að Montpellier hafi forkaupsrétt á Niang að lánssamningi loknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.