Fotbolti.net
23.12.13 - 21:18
Ívan Guðjón Baldursson

Tim Sherwood tekinn við Tottenham (Staðfest)

Tim Sherwood tekinn við Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tim Sherwood hefur verið ráðinn sem nýr knattspyrnustjóri Tottenham Hotspurs og skrifaði hann undir 18 mánaða samning.

Ljóst er að Chris Ramsey, Les Ferdinand og Steffen Freund verða Sherwood til halds og trausts sem yfirþjálfarar félagsins.
,,Við gerum svona stóra breytingar á miðju tímabili með miklum trega en breytinga var þörf, fyrir félagið,\" sagði Daniel Levy, formaður Tottenham.

,,Við höfum frábært lið og þurfum stjóra sem dregur það besta úr hverjum og einum þeirra svo þeir geti stækkað sem einstaklingar og liðsheild.

,,Við erum heppnir að eiga mjög hæfileikaríkan þjálfara innan raða okkar nú þegar, Tim Sherwood.

,,Við trúum því að Tim hafi bæði þekkinguna og ákveðnina í að koma liðinu áfram.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.