23.12.13 - 18:00
Alexander Freyr Tamimi
Vignir Jóhannesson í Selfoss (Staðfest)

Vignir Jóhannesson er genginn til liðs við Selfoss.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnudeild Selfoss samdi í morgun við 23 ára gamlan markvörð, Vigni Jóhannesson, sem kemur til liðsins frá Breiðabliki.
Þetta kemur fram á Sunnlenska.is, en samningur Selfoss við Vigni er til tveggja ára.

Undanfarin tvö tímabil hefur Breiðablik lánað Vigni til Njarðvíkur og á hann að baki 32 leiki fyrir liðið í 2. deildinni og bikar.
Í vetur hefur hann leikið með liði Auburn Montgomery í bandaríska háskólaboltanum, en fjölmargir Íslendingar hafa spilað og lært þar.
Vignir lék þrjá leiki með Blikum í efstu deild árið 2008. Hann á að baki fimm landsleiki með U19 og U17 ára liðum Íslands.

Heimild: Sunnlenska