Fotbolti.net
23.12.15 - 14:11
Magnús Már Einarsson

Fyrrum leikmaður Real Madrid í Breiðablik (Staðfest)

Sergio Carrallo Pendás í leik með Breiðabliki á dögunum.

Sergio Carrallo Pendás í leik með Breiðabliki á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik hefur samið við spænska leikmanninn Sergio Carrallo Pendás.

Sergio var á reynslu hjá Blikum í byrjun mánaðarins og hann hefur nú gert tveggja ára samning við félagið.
Sergio er 21 árs miðju- og kantmaður en hann var áður á mála hjá unglinga- og varaliði Real Madrid.

Sergio kemur til landsins í byrjun janúar og ætti því að ná fyrstu leikjum í Fótbolti.net mótinu. Blikar mæta ÍBV í fyrsta leik þar þann 9. janúar.

Hann er annar leikmaðurinn sem Breiðablik fær í sínar raðir í vetur en áður hafði framherjinn Guðmundur Atli Steinþórsson komið frá HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.