23.12.21 - 12:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveimur leikjum frestað (Staðfest) - Liverpool spilar ekki á öðrum degi jóla

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni hefur verið frestað vegna covid-19 veirunnar. Leikirnir áttu að fara fram 26. desember.
Viðureign Liverpool gegn Leeds og leikur Wolves gegn Watford fara ekki fram á öðrum degi jóla. Þeir leikir áttu báðir að hefjast klukkan 12:30.
Viðureign Liverpool gegn Leeds og leikur Wolves gegn Watford fara ekki fram á öðrum degi jóla. Þeir leikir áttu báðir að hefjast klukkan 12:30.
Þetta verður þriðji leikurinn í röð hjá Watford sem verður frestað vegna smita hjá félaginu.
Liverpool spilaði í gær gegn Leicester í deildabikarnum. Wolves spilaði gegn Chelsea um helgina og Leeds lék gegn Arsenal.
Leeds er ekki með nægilega marga leikmenn klára í slaginn sökum covid, meiðsla og annarra veikinda. Æfingasvæði félagsins hefur verið lokað. Watford er ekki heldur með nægilega mikinn mannskap til að spila gegn Wolves. Þessi tvö félög, Watford og Leeds, óskuðu eftir að leikjunum yrði frestað.
sunnudagur 26. desember
ENGLAND: Premier League
12:30 Liverpool - Leeds FRESTAÐ
12:30 Wolves - Watford FRESTAÐ
15:00 Burnley - Everton
15:00 Man City - Leicester
15:00 Norwich - Arsenal
15:00 Tottenham - Crystal Palace
15:00 West Ham - Southampton
17:30 Aston Villa - Chelsea
20:00 Brighton - Brentford