Fotbolti.net
24.01.13 - 16:41
Daníel Freyr Jónsson

Federico Macheda lánaður til Stuttgart (Staðfest)

Kiko Macheda.

Kiko Macheda.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Manchester United hefur lánað framherjann Federico Macheda til Stuttgart og mun hann leika með þýska liðinu út leiktíðina.
Félögin komust að samkomulagi þess efnis í dag, en Macheda er aftarlega í goggunarröðinni á Old Trafford.

Stuttgart hafði þar betur í baráttunni við nokkur ónefnd lið um að fá Macheda og mun hann klæðast treyju númer 14 hjá nýja félaginu.

,,Ég hef fylgst með Bundesligunni og þekki Stuttgart því vel. Ég er ánægður með að geta nú spilað fyrir félagið,\" sagði Macheda.

Macheda hefur áður verið á láni hjá QPR og Sampdoria, en þær dvalir þóttu báðar frekar mislukkaðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.