24.01.13 - 12:41
Daníel Freyr Jónsson
Fernando Llorente fer til Juventus í sumar (Staðfest)

Fernando Llorente.

Mynd: Getty Images

Fernando Llorente.

Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Fernando Llorente mun ganga í raðir Juventus í sumar og kemur hann á frjálsri sölu frá Athletic Bilbao.
Samningur Llorente hjá Bilbao rennur út í lok tímabils og mun hann yfirgefa félagið á Bosman-reglunni.
Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning hjá ítölsku meisturunum, en lengi hefur legið í loftinu að Llorente myndi ganga í raðir félagsins.
Llorente kom upp í gegnum unglingastarf Bilbao, en hann hefur skorað 79 mörk í 246 leikjum með liðinu. Hann hefur hinsvegar einungis skorað 1 mark í 12 leikjum á yfirstandandi leiktíð.
Þá hefur hann skorað 7 mörk í 21 leik með spænska landsliðinu og varð meðal annars heimsmeistari með Spánverjum árið 2010.

Heimild: Heimasíða Juventus