24.01.13 - 18:12
Daníel Freyr Jónsson
Massadio Haidara til Newcastle (Staðfest)

Massaido Haidara.

Mynd: Getty Images

Massaido Haidara.

Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur gengið frá kaupunum á Massadio Haidara og skrifaði hann undir samning fram á mitt ár 2017.
Haidara er tvítugur vinstri bakvörður sem kemur frá Nancy og er hann fjórðu kaup félagsins í janúarglugganum.
Haidara hefur leikið með yngri landsliðum Frakklands og þykir mikið efni, en hann byrjaði að leika með Nancy árið 2010.
Þetta er níundi Frakkinn í herbúðum Newcastle og er viðbúið að Moussa Sissoko verði sá tíundi áður en langt um líður, en hann er á leið til Newcastle frá Toulouse.
Sem fyrr segir eru þetta fjórðu kaup Newcastle í janúarglugganum, en áður hafði félagið fengið þá Mathieu Debuchy, Mapou Yanga-Mbiwa og Yoan Gouffran. Allir fjórir eru franskir.