24.01.14 - 11:22
Hafliði Breiðfjörð
Darren Lough til ÍA (Staðfest)

Darren Lough í leik með KA. Að baki honum má sjá Gunnlaug Jónsson sem þá þjálfaði KA en þjálfar ÍA í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Englendingurinn Darren Lough hefur skrifað undir 2ja ára samning við ÍA. Darren er 24 ára örvfættur varnarmaður sem leikið getur stöðu vinstri bakvarðar og sem miðvörður.
Hann er uppalinn hjá Newcastle Utd þar sem hann lék með með unglingaliðum og varaliði úrvalsdeildarliðsins.
Hann kom einnig við sögu í æfingaleikjum aðalliðsins. Darren hefur leikið undanfarin tvö keppnistímabil með KA þar sem lék 40 leiki í 1.deild.
Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍA er mjög ánægður með að fá þennan fyrrum leikmann sinn í raðir ÍA, en Darren lék einmitt undir stjórn Gunnlaugs árið 2012 þegar hann þjálfaði KA.
,,Ég er gríðarlega ánægður að Darren sé búinn að skrifa undir hjá okkur. Ég hef mjög góða reynslu af þessum dreng og hann er mikill atvinnumaður innan sem utan vallar,\" sagði Gunnlaugur í fréttatilkynningu félagsins.
,,Hann kom seint til liðs við KA fyrir tímabilið 2012 en varð fljótlega lykilmaður í liðinu og sýndi mikinn stöðugleika allt tímabilið og var að mínu mati jafnbesti maður liðs KA þetta tímabilið.\"