24.01.14 - 12:58
Magnús Már Einarsson
Ísland í 5. styrkleikaflokki í undankeppni EM (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

UEFA hefur staðfest styrkleikaflokkana sem verða notaðir þegar dregið verður í undankeppni EM 2016 þann 23. febrúar næstkomandi.
Þrátt fyrir frábæran árangur í undankeppni HM þá er íslenska landsliðið í fimmta styrkleikaflokki fyrir dráttinn í næsta mánuði. Íslenska liðið er efst í þeim flokki og því munaði litlu að liðið hefði náð í fjórða styrkleikaflokk.
Eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki verður dregið í hvern riðil. Þau tvö lið sem enda efst í hverjum riðli fara síðan á EM í Frakklandi 2016 en liðin sem enda í þriðja sæti fara í umspil.

Styrkleikaflokkur 1: Spánn, Þýskaland, Ítalía, England, Portúgal, Grikkland, Rússland, Holland og Bosnía/Herzegóvína.
Styrkleikaflokkur 2: Úkraína, Króatía, Svíþjóð, Danmörk, Sviss, Belgía, Tékkland, Ungverjaland og Írland.
Styrkleikaflokkur 3: Serbía, Tyrkland, Slóvenía, Ísrael, Noregur, Slóvakía, Rúmenía, Austurríki og Pólland.
Styrkleikaflokkur 4: Svartfjallaland, Armenía, Skotland, Finnland, Lettland, Wales, Búlgaría, Eistland, Hvíta-Rússland.
Styrkleikaflokkur 5: Ísland, Norður-Írland, Albanía, Lithaén, Moldavía, Makedónía, Azerbaijan, Georgía, Kýpur.
Styrkleikaflokkur 6: Lúxemborg, Kasakstan, Liechtenstein, Færeyjar, Malta, Andorra, San Marinó og Gíbraltar.