Fotbolti.net
24.01.14 - 17:37
Magnús Már Einarsson

Lacina Traore til Everton (Staðfest)

Lacina Traore til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur fengið framherjann hávaxna Lacina Traore á láni frá Monaco út tímabilið.

West Ham var nálægt því að krækja í Traore fyrr í mánuðinum en Roberto Martinez, stjóri Everton, náði að stela honum á síðustu stundu.

Einhverjir stuðningsmenn Everton óttuðust við að Monaco myndi hætta við lánssamninginn eftir að Radamel Falcao meiddist illa í vikunni en svo fór þó ekki.
Hinn 23 ára gamli Traore kemur frá Fílabeinsströndinni en hann skoraði 13 mörk í 29 leikjum með Anzhi áður en hann gekk í raðir Monaco á dögunum.

Traore verður ekki einn hávaxnasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni þó að hann sé 203 cm á hæð því Costel Pantilimon markvörður Manchester City og Peter Crouch framherji Stoke eru jafnháir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.