Fotbolti.net
24.01.14 - 12:55
Magnús Már Einarsson

Þór/KA fær landsliðsmarkvörð Suður-Afríku (Staðfest)

Grimsley og Annis áfram

Thanai Annis.

Thanai Annis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur samið við Suður-Afríska landsliðsmarkvörðinn Roxanne Barker um að leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Roxanne kemur í stað Victoriu Alonzo sem lék með liðinu síðari hluta síðasta tímabils.

Roxanne er 23 ára gömul og 180 sentimetra há lék síðast með Stellanbosch í Suður-Afríku. Roxanne kemur úr háskólaboltanum í USA (Pepperdine University). Roxanne lék m.a. á Ólympíuleiknunum í London 2012.

Þá er einnig ljóst að Bandaríksu leikmennirnir Kayla Grimsley og Tahnai Annis sem hafa leikið með ÞórKA síðustu tvö tímabil munu leika áfram með liðinu.

Leikmennirnir hafa leikið stórt hlutverk í liðinu og áttu meðal annars stóran þátt í því að liðið varð Íslandsmeistari árið 2012.

Kayla á að baki 42 leiki með liðinu og í þeim leikjum hefur hún skorað 7 mörk. Tahnai hefur leikið 44 leiki með liðinu og í þeim leikjum skoraði hún 16 mörk.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.