Fotbolti.net
24.01.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Kuzmanovic til Udinese (Staðfest)

Kuzmanovic og Birkir Bjarnason

Kuzmanovic og Birkir Bjarnason

Canon

Mynd: Getty Images

Zdravko Kuzmanovic er genginn til liðs við ítalska úrvalsdeildarliðið Udinese en hann kemur til félagsins frá Basel.
Kuzmanovic gerir lánssamning út þetta tímabil en með möguleika á því að ganga alfarið til liðs við Udinese næsta sumar.

Þessi 28 ára gamli miðjumaður gerði fimm ára samning við Basel síðasta sumar en hefur ekki náð að vinna sér sæti í byrjunarliðinu hjá svissneska stórliðinu.

Kuzmanovic þekkir vel til ítölsku deildarinnar eftir að hafa leikið með Inter og Fiorentina á árum áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.