Fotbolti.net
24.01.16 - 12:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Victor Valdes lánaður til Standard Liege (Staðfest)

Victor Valdes er farinn til Belgíu

Victor Valdes er farinn til Belgíu

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur komist að samkomulagi við belgíska úrvalsdeildarliðið, Standard Liege, um að lána Victor Valdes til Standard út tímabilið.

Valdes kom til United fyrir ári síðan, en honum var síðan hent í frystikistuna af Louis van Gaal í sumar þegar hann neitaði að spila leik með varaliði félagsins.
Valdes lék aðeins tvo leiki fyrir United, en þeir komu báðir á síðasta tímabili gegn Arsenal og Hull.

Valdes fékk ekki treyjunúmer fyrir þetta tímabil og hefur hann ekki æft með félaginu frá því honum lenti saman með van Gaal.

Hann mun því núna fara til Belgíu, en Standard er í sjöunda sæti belgísku úrvalsdeildarinnar með 31 stig eftir 22. umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.