Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. janúar 2020 15:26
Magnús Már Einarsson
Viðar á leið til Yeni Malatyaspor
Mynd: Eyþór Árnason
Íslenski landsliðsmaðurinn Viðar Örn Kjartansson er að ganga frá samningum við Yeni Malatyaspor í Tyrklandi en 433.is greinir frá.

Viðar kemur til Malatyaspor fra Rostov í Rússlandi en þar hefur hann verið samningsbundinn síðan árið 2018.

Á síðasta ári fór Viðar til Rubin Kazan á láni en þeim lánssamningi var rift á dögunum.

Hinn 29 ára gamli Viðar er nú á leið til Tyrklands en hann hefur á ferli sínum einnig leikið í Noregi, Svíþjóð, Kína og Ísrael.

Yeni Malatyaspor siglir lygnan sjó í níunda sæti í tyrknesku deildinni en liðið er með 24 stig eftir 18 leiki.
Athugasemdir
banner
banner