Fotbolti.net
24.01.21 - 16:05
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Man Utd og Liverpool: Mane og Fernandes á bekknum

Byrjunarlið Man Utd og Liverpool: Mane og Fernandes á bekknum
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United og Liverpool eigast við í annað sinn á einni viku er þau kljást í enska bikarnum í dag.
Liðin gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni fyrir viku og verður áhugavert að sjá hvernig leikurinn spilast í dag.

Báðir stjórarnir gera breytingar á byrjunarliðunum sem skildu jöfn fyrir viku.

Ole Gunnar Solskjær gerir fjórar breytingar frá jafnteflinu. Donny van de Beek kemur inn á miðjuna fyrir Fred og þá detta Bruno Fernandes og Anthony Martial á bekkinn rétt eins og David de Gea.

Jürgen Klopp gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu markalausa þar sem Rhys Williams tekur sér stöðu við hlið Fabinho í hjarta varnarinnar.

Þá byrjar Curtis Jones í sóknarlínunni í stað Sadio Mane sem er á bekknum og James Milner fær sæti á miðjunni á meðan Xherdan Shaqiri byrjar á bekknum.

Man Utd: Henderson, Wan-Bissaka, Lindelöf, Maguire, Shaw, Van de Beek, McTominay, Pogba, Rashford, Greenwood, Cavani.
Varamenn: De Gea, Telles, Tuanzebe, Fernandes, Fred, James, Mata, Matic, Martial

Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, R Williams, Fabinho, Robertson; Milner, Thiago, Wijnaldum; Salah, Firmino, Jones.
Varamenn: Kelleher, Mane, Oxlade-Chamberlain, Minamino, Tsimikas, Shaqiri, Origi, Phillips, N Williams.
Byrjunarlið Man Utd og Liverpool: Mane og Fernandes á bekknum
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.