„Það voru margir góðir hlutir en við gerðum mistök í mörkunum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 3-2 tap gegn Manchester United í FA-bikarnum.
„Ef þú vilt vinna hérna (á Old Trafford) þá þarftu að vera upp á þitt besta og það vorum við ekki."
„Við getum tekið hluti úr þessum leik, við reynum að læra af hverjum einasta leik. Þetta var góður leikur fyrir Mo Salah, fyrir sjálfstraustið hans."
„Þetta var erfiður leikur. Við vildum þetta mjög mikið en það var ekki nóg í kvöld."
„Þú getur fundið neikvæða hluti í sigrum og töpum, en í kvöld sá ég að strákarnir vildu þetta mjög, mjög mikið. Við vorum í vandræðum með skyndisóknir þeirra en við getum líka fundið jákvæða hluti í þessu."
Athugasemdir