Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 24. janúar 2022 15:00
Elvar Geir Magnússon
Aubameyang hefur lítinn áhuga á að fara til Sádi-Arabíu
Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang.
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmaður Arsenal, hefur lítinn áhuga á því að fara til Sádi-Arabíu en Al Hilal vill fá hann í sínar raðir. Arsenal vill losna við Aubameyang sem hefur verið úti í kuldanum eftir agabrot.

Al Hilal vildi fá Aubameyang lánaðan út tímabilið með möguleika á því að kaupa þennan landsliðsmann Gabon næsta sumar.

Al Hilal er sigursælasta félag Sádi-Arabíu og er tilbúið að borga laun leikmannsins að fullu. En þó Arsenal sé tilbúð að semja þá ku leikmaðurinn frekar vilja skipta í annað félag í Evrópu.

Juventus og Paris Saint-Germain eru meðal félaga sem fylgjast með gangi mála og hafa áhuga á Aubameyang.
Athugasemdir
banner
banner
banner