Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. janúar 2023 23:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jones: Fjórum sinnum orðið fórnarlamb VAR
Mynd: Getty Images

Nathan Jones stjóri Southampton var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir tap gegn Newcastle í enska deildabikarnum í kvöld.


„Ég er stoltur af frammistöðunni því þetta er eitt af bestu liðunum, stórir og sterkir. Þeir hafa fengið tíma til að bæta við hópinn og hafa gert það svona og það er erfitt að mæta þeim en mér fannst við vera frábærir. Það sýnir hversu langt við erum komnir hvernig við spiluðum í kvöld," sagði Jones.

„Það vantaði bara smá gæði hér og þar, um leið og við fáum smá sjálfstraust og náum inn einu til tveimur mörkum verðum við ógnandi."

Southampton skoraði mark aðeins tveimur mínútum eftir að Joelinton kom Newcastle yfir en markið var dæmt af þar sem boltinn hafði farið í höndina á Adam Armstrong í aðrdagandanum.

„Það er ekki hægt að fagna mörkum í dag því maður veit ekki hvað gerist næstu 20 sekúndurnar. Við höfum fjórum sinnum orðið fórnarlamb VAR. Þetta er pirrandi en þeir fengu eitt atvik gegn sér og við eitt svo það jafnar sig út."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner