24.02.14 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Ben Everson til Svíþjóðar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ben Everson, fyrrum framherji BÍ/Bolungarvíkur, hefur gengið til liðs við AFC United í sænsku C-deildinni.
Ben skoraði tíu mörk í fyrstu deildinni í fyrra og var valinn í lið ársins í deildinni. Eftir tímabilið varð þó ljós að hann myndi yfirgefa herbúðir BÍ/Bolungarvíkur.
Önnur íslensk félög sýndu Ben áhuga en hann hefur nú gert samning í Svíþjóð.
Þessi 25 ára gamli Englendingur lék með Tindastóli fyrri hluta sumars árið 2012.
Eftir góða frammistöðu þar samdi hann síðan við Breiðablik og lék með liðinu síðari hluta sumars.