Fotbolti.net
24.02.14 - 11:31
Magnús Már Einarsson

Danskur varnarmaður í Stjörnuna (Staðfest)

Danskur varnarmaður í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Stjörnumenn hafa samið við danska varnarmanninn Niclas Vemmelund en samningur hans gildir út tímabilið.
,,Hinn 21. árs Niclas Vemmelund er öflugur varnarmaður sem getur leyst allar stöður í vörninni. Niclas hefur þann sjaldgæfa kost að vera jafnvígur á báða fætur sem mun nýtast liðinu vel í sumar,\" segir á heimasíðu Stjörnunnar.

Niclas kemur frá danska úrvalsdeildarliðinu OB Odense þar sem hann hefur spilað síðan 2012.

Áður hafði hann spilað um 50 leiki með Fc Fyn, en þar spilaði hann með Michael Præst núverandi leikmanni Stjörnunnar. Þá hefur Niclas spilað með U-19 ára landsliði Dana.

Í vetur hafa varnarmennirnir Martin Rauschenberg, Jóhann Laxdal og Tryggvi Sveinn Bjarnason allir farið frá Stjörnunni en Garðbæingar hafa verið í leit að varnarmanni að undanförnu.

Í janúar kom danski varnarmaðurinn Casper Andersen til Stjörnunnar á reynslu en félagið ákvað að semja ekki við hann.

Heimild: Heimasíða Stjörnunnar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.