24.02.16 - 17:41
Elvar Geir Magnússon
Aldís Kara heim í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Aldís Kara Lúðvíksdóttir er gengin í raðir FH frá Breiðabliki en hún hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt.
Aldís hefur undanfarin þrjú keppnistímabil spilað með núverandi Íslandsmeisturum Breiðabliks en hún gekk til liðs við Kópavogsfélagið frá FH fyrir keppnistímabilið 2013.
Aldís er fædd 1994 en hún á fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Íslands.
Hún skoraði fimm mörk í sautján leikjum í Pepsi-deild kvenna síðasta sumar.
FH lék í 1. deild á síðasta tímabili en náði að vinna sér inn sæti í deild þeirra bestu þar sem liðið leikur í sumar.