Fotbolti.net
24.02.16 - 06:00
Óðinn Svan Óðinsson

Árni Kristinn Skaftason í Magna (Staðfest)

Árni Skaftason spilar með Magna í sumar

Árni Skaftason spilar með Magna í sumar

Canon

Mynd: Kristján Sigurólason

Markmaðurinn reyndi Árni Kristinn Skaftason hefur samið við Magna frá Grenivík.

Árni semur út næstu leiktíð en honum er ætlað að veita markmanninum knáa Hirti Geir Heimissyni samkeppni um markmannsstöðuna næsta sumar.
Árni er þaulreyndur markmaður en hann hefur leikið með KA, Leifti/Dalvík og Þór en þar lék hann síðast árið 2008.

Síðast lék Árni í neðri deildum Noregs.

Magnamenn leika í 2. deild næsta sumar eftir að hafa unnið 3. deildina síðasta sumar með glæsibrag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.