24.02.16 - 10:22
Magnús Már Einarsson
Tryggvi Guðmunds í KFS (Staðfest)

Tryggvi í leik með KFS.

Mynd: Eyjafréttir

Tryggvi í leik með KFS.

Mynd: Eyjafréttir
Tryggvi Guðmundsson hefur gengið til liðs við KFS í Vestmannaeyjum á nýjan leik en hann ætlar að leika með liðinu í 3. deildinni í sumar.
Tryggvi spilaði með KFS sumarið 2014 og fyrri hluta síðasta tímabils áður en hann gekk í raðir Njarðvík.
Hjá Njarðvík skoraði Tryggvi þrjú mörk og sló um leið met yfir flest mörk í deildarkeppni hjá Íslendingi.
Tryggvi skoraði þá 218. mark sitt í deildarkeppnum á Íslandi, Noregi og Svíþjóð og er hann með marki meira en Vilberg Marinó Jónasson sem skoraði 217 mörk á ferli sínum.
Hinn 41 árs gamli Tryggvi stefnir síðan á að skora fleiri mörk í sumar og bæta metið ennþá frekar.