Fotbolti.net
24.02.17 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bentaleb keyptur til Schalke 04 (Staðfest)

Bentaleb fagnar hér marki með Schalke.

Bentaleb fagnar hér marki með Schalke.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska félagið Schalke 04 hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Nabil Bentaleb.

Bentaleb er í láni hjá Schalke frá Tottenham, en hann mun ganga endanlega í raðir Schalke eftir að tímabilinu lýkur.
Þessi 22 ára gamli alsírski landsliðsmaður hefur leikið 20 leiki í þýsku Bundesligunni á tímabilinu og staðið sig með prýði.

Hann er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Schalke sem mun taka gildi þegar tímabilinu lýkur. Hvorki Schalke né Tottenham hafa gefið upp verð.

Bentaleb kom inn í aðallið Tottenham árið 2013 og spilaði talsvert í kjölfarið. Alsíringurinn spilaði hins vegar einungis fimm leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabii undir stjórn Mauricio Pochettino og ljóst var að hann var ekki í plönum hans.

Delighted to move permanently to @s04 new beginnings thanks to everyone at the club for trusting me and thanks to the fans for the support💪🏽

— Nabil Bentaleb (@nabilbentaleb42) February 24, 2017

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.