Fotbolti.net
24.02.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Olgeir og Guðjón ráðnir þjálfarar Augnabliks (Staðfest)

Olgeir í leik með Blikum um árið.

Olgeir í leik með Blikum um árið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Augnablik, sem leikur í 4. deild karla, hefur ráðið til starfa þjálfara fyrir komandi tímabil. Þetta eru þeir Olgeir Sigurgeirsson og Guðjón Gunnarsson.

Frá þessu greindi félagið á Facebook-síðu sinni í dag, en þeir báðir þekkja vel til Breiðabliks og eru uppaldir þar.
Olgeir er leikjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi með 321 leik á bakinu. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu.

Guðjón Gunnarsson hefur leikið með ÍR síðustu ár, en hann er uppalinn Bliki og spilaði með liði Augnabliks árið 2007. Guðjón hefur verið áberandi í yngri flokka þjálfun hjá Breiðabliki undanfarin ár.

„Stjórn Augnabliks býður þessa heiðursmenn velkomna til félagsins,\" segir á Facebook-síðu félagsins.

Guðjón Gunnarsson.

Guðjón Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.