Fotbolti.net
24.02.20 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Andre Gomes þakklátur eftir magnaðan bata

Andre Gomes þakklátur eftir magnaðan bata
Canon

Mynd: Getty Images

Andre Gomes, miðjumaður Everton, kom inn á sem varamaður gegn Arsenal í gær einungis 112 dögum eftir að hann fótbrotnaði á skelfilegan hátt gegn Tottenham.

Eftir leikinn sagði Carlo Ancelotti, stjóri Everton, að Gomes komi til greina í byrjunarliðið í næsta leik.

<i>„Ég þarf að þakka öllum fyrir,"</I> sagði Gomes sáttur eftir leikinn í gær.

<i>„Liðið var frábært, stuðningsmenn Everton, fótbolta stuðningsmenn og allir hafa verið yndislegir við mig. Atvinnumenn og fyrrum atvinnumenn hafa verið yndislegir og ég þarf að þakka þeim fyrir."
„Það gaf mér sjálfstraust að fá stuðning frá fólkinu. Ég lagði mig allan fram og vildi koma eins fljótt og hægt var til baka. Ég er ánægður með alla hjálpina sem ég hef fengið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.