Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. febrúar 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Coady búinn að spila allar mínúturnar 100 deildarleiki í röð
Mynd: Getty Images
Conor Coady er miðvörður og fyrirliði Wolves í enska boltanum. Hann afrekaði það um helgina að spila allar mínúturnar í hundraðasta deildarleiknum í röð.

Coady, sem verður 27 ára á morgun, hefur einnig spilað allar mínúturnar í enska FA bikarnum og Evrópudeildinni. Hann var síðast hvíldur í FA bikarnum í tapleik gegn Swansea fyrir tveimur árum.

Á þessum tíma hefur Coady ekki orðið fyrir meiðslum eða verið dæmdur í leikbann.

Coady ólst upp hjá Liverpool og var fyrirliði U21 liðsins. Hann heldur með félaginu enn í dag.

Úlfarnir hafa verið að gera fína hluti á tímabilinu og eru í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum frá Evrópusæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner