Fotbolti.net
24.02.22 - 16:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristján Atli og Kristófer Reyes í Kórdrengi (Staðfest) - Alls sjö skipti

Kristján Atli

Kristján Atli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Sjö leikmenn hafa fengið félagaskipti í Kórdrengi að undanförnu. Leikmennirnir sem um ræðir eru Gunnar Dan Þórðarson, Ingvar Þór Kale, Kristján Atli Marteinsson, Kristófer Jacobsson Reyes, Marínó Hilmar Ásgeirsson, Óskar Atli Magnússon og Óskar Sigþórsson.
Ingvar Kale er nafn sem margir kannast við en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er þessi reyndi markvörður (38 ára) fenginn til að leysa af núna á undirbúningstímabilinu og ólíklegt að hann verði með liðinu í sumar.

Kristján Atli Marteinsson kemur frá Aftureldingu. Hann er 25 ára gamall miðjumaður sem hefur skorað tíu mörk í 112 leikjum. Hann er uppalinn hjá HK en í meistaraflokki hefur hann spilað með Fjarðabyggð, Selfoss, Magna og Aftureldingu. Hann spilaði æfingaleik með Keflavík í vetur en er nú mættur í Kórdrengi.

Kristófer Reyes er 24 ára gamall varnarmaður sem var í Fjölni í fyrra. Hann hefur einnig leikið með Víkingi Ólafsvík og Fram í meistaraflokki.

Óskar Atli Magnússon er kominn til Kórdrengja á láni frá FH. Óskar kom við sögu í fimm deildarleikjum með FH í fyrra. Hann er nítján ára sóknarmaður og skoraði tíu mörk í nítján leikjum með 2. flokks liði FH í fyrra. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 2020.

Óskar Sigþórsson er 23 ára markvörður sem uppalinn er hjá FH og Haukum. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 2017 og hefur síðan leikið 49 leiki í deild og bikar.

Marínó Hilmar Ásgeirsson kemur frá Kára þar sem hann skoraði sjö mörk í sextán leikjm í 2. deild í fyrra. Marinó er Skagamaður og á að baki 120 leiki í deild og bikar með Kára og í þeim leikjum hefur hann skorað 26 mörk. Hann spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður.

Þá hefur Gunnar Dan Þórðarson skipt yfir í Kórdrengi frá Álafossi þar sem hann spilaði í fyrra. Gunnar er 21 árs markvörður sem uppalinn er hjá Fram og hefur spilað með Úlfunum og Álafossi í meistaraflokki.

Kórdrengir mæta Leikni í Lengjubikarnum í kvöld og eru allir nýju leikmennirnir nema Óskar Sigþórsson og Kristófer Reyes á skýrslu.
Kristófer Reyes

Kristófer Reyes

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.