Fotbolti.net
24.02.22 - 12:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Magni nýr yfirmaður knattspyrnumála hjá Start (Staðfest)

Magni Fannberg.

Magni Fannberg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norska félagið Start hefur staðfest að Magni Fannberg sé nýr yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
Magni er 42 ára gamall og hefur starfað erlendis frá 2009. Hér heima þjálfaði hann meðal annars Grindavík og Fjarðabyggð. Á erlendum vettvangi starfaði Magni fyrir IF Brommapojkarna í Svíþjóð fyrst um sinn og var um stutt skeið þjálfari aðalliðsins þar.

Hann var þróunarstjóri hjá Brann í Noregi frá 2016 til 2019 og hefur síðustu ár gegnt sama starfi fyrir AIK í Svíþjóð. Starfið fólst í að byggja brú milli akademíu félagsins og aðalliðsins.

Á ferli sínum hefur Magni einnig verið hluti af njósnateymi íslenska karlalandsliðsins.

„Magni kom gríðarlega vel fyrir á fyrsta fundi með okkur," sagði Terje Marcussen, stjórnarmaður hjá Start. „Ég er viss um að hann muni hjálpa við að lyfta félaginu upp."

Magni mun kveðja samstarfsfólk sitt hjá AIK síðar í dag og svo mun hann hefjast handa við vinnu sína bak við tjöldin hjá Start.

Start endaði í níunda sæti í næst efstu deild Noregs á síðustu leiktíð. Einn íslenskur leikmaður er á mála hjá félaginu, Bjarni Mark Antonsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.