Fotbolti.net
24.02.22 - 10:21
Elvar Geir Magnússon

Mark Hughes tekur við D-deildarliði Bradford (Staðfest)

Mark Hughes.

Mark Hughes.

Canon

Mynd: Getty Images

Bradford City hefur tilkynnt um ráðningu á Mark Hughes og hefur hann skrifað undir samning við félagið til sumarsins 2024.

Bradford er í 15. sæti ensku D-deildarinnar, League Two og óhætt að segja að ráðningin á Hughes séu óvæntar fréttir.

Hughes er feikilega reynslumikill stjóri sem hefur stýrt yfir 450 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Hann er fyrrum leikmaður Manchester United og fyrrum stjóri Manchester City, Stoke City, Fulham, QPR, Blackburn Rovers og Wales.
Hann stýrði síðast Southampton 2018 en snýr nú aftur í stjórastarfið.

„Það kemur kannski á óvart að ég tek þetta starf að mér. Ég er hér í tilgangi: Gera Bradford að liði sem fólk vill mæta til að horfa á og er stolt af. Ég get ekki beðið eftir því að finna aftur tilfinninguna á leikdegi og eiga samskipti við stuðningsmenn," segir Hughes.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.