24.02.22 - 11:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nýtt nafn á efstu deildir karla og kvenna: Besta deildin (Staðfest)

Nýtt nafn kynnt í Bæjarbíói.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýtt nafn kynnt í Bæjarbíói.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag, á fundi ÍTF í Bæjarbíói, var tilkynnt um nýtt nafn á efstu deildir karla og kvenna í fótbolta.
Deildirnar munu heita Besta deild karla og Besta deild kvenna.
Besta deild karla hefst í apríl og Besta deild kvenna hefst í maí.
Á ársþingi KSÍ á laugardag verður svo staðfest breytt fyrirkomulag á efstu deild karla. Í stað 22 umferða verða leiknar 27 umferðir - fyrst 22 umferðir og svo einföld umferð í efra umspili (efstu sex liðin) og neðra umspili (neðstu sex liðin).
Sjá einnig:
Í beinni - Nýtt vörumerki efstu deilda
